BYR fasteignasala kynnir í einkasölu ALDINMÖRK 8 ÍBÚÐ 201, 810 Hveragerði. Þriggja herbergja enda íbúð á annarri hæð í fjölbýlishúsi með lyftu í Edenbyggð Hveragerði.
Sólrík endaíbúð á suðurhlið, suð- austur svalir, stutt í alla almenna þjónustu. Smellið hér fyrir staðsetningu. ALDINMÖRK 8 ÍBÚÐ 201, önnur hæð til hægri. Íbúð 76,4 m² og geymsla 3,5 m² samtals 79,9 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign er sér geymsla og vagna- og hjólageymsla.
LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.Nánari lýsing: Anddyri með fataskáp.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er úr alrými út á svalir 11,7 m².
Eldhús, sérsmíðuð innrétting, AEG sjálfhreinsandi blástursofn í vinnuhæð, spanhelluborð og þunn útdraganleg vifta sem fellur upp undir efri skáp. Stálvaskur og Grohe blöndunartæki eru í eldhúsinu og innbyggð LED lýsing undir efri skápum.
Tvö svefnherbergi, möguleiki er á að setja upp þriðja svefnherbergið á kostnað alrýmis. Hjónaherbergi er með fataskápum yfir heilan vegg.
Barnaherbergi með tvöföldum fataskáp.
Baðherbergi, flisar á gólfi og á veggjum í sturtu, upphengt salerni, vaskinnrétting, speglaskápur, Grohe blöndunartæki.
Þvottaaðstaða er á baðherbergi.
Gólfefni: Harðparket er á alrými og svefnherbergjum. og í stofu. Flísar á anddyri og baðherbergi.
Rúllugardínur í öllum rýmum fylgja.
Sér geymsla er í sameign í kjallara.
Í sameign í kjallara er vagna- og hjólageymsla og inntaksrými. Lyftan fer niður í kjallara.
Nánar um húsið, T.ark arkitektar eru aðalhönnuðir hússins. Aldinmörk 8 er þriggja hæða fjölbýli,í húsinu eru 9 íbúðir, þjár á hverri hæð. Húsið er staðsteypt og klætt að utan með málm - og timburklæðninug. Þak er upptekið timburþak.
Lyfta er í húsinu sem tengir kjallara og hæðirnar þjár. Sér inngangur er íbúðina. Sameiginleg lóð er frágengin, sorptunnuskýli, opið hjólskýli er á lóð.
Miðlægt torg er á milli húsanna á svæðinu þar sem eru fjögur lítil gróðurhús sem íbúar svæðisins geta leigt af sveitarfélaginu til eigin nota.
Bílastæði eru í sameign. Húsfélag er starfrækt í eigninni. Lóð er sameiginleg 654,1 m² leigulóð.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:Fasteignanúmer 250-6256.Stærð: Íbúð 76,4 m². Geymsla 3,5 m² Samtals 79,9 m².
Byggingarár: 2019
Byggingarefni: Steypa
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala