Elín Káradóttir
Eigandi og löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 859-5885
elin@byrfasteign.is
Edenmörk 3 íbúð 102 , 810 Hveragerði
47.200.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
2 herb.
63 m2
47.200.000
Stofur
1
Svefnherbergi
1
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2021
Brunabótamat
37.150.000
Fasteignamat
42.350.000

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu EDENMÖRK 3 ÍBÚÐ 102 Hveragerði. Tveggja herbergja íbúð á neðri hæð með sérinngangi, í Edenbyggð í hjarta Hveragerðis.
S
tutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði, stutt er á stoppistöð strætisvagna. Smellið hér fyrir staðsetningu. 
ÍBÚÐ 102 NEÐRI HÆÐ. Íbúðin er 63,1 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, svefnherbergi, baðherbergi og geymsla.

Nánari lýsing: 
Anddyri með einföldum fataskáp. 
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi. Útgengt er út á hellulagða verönd til suðurs úr alrými. 
Eldhús er með AEG ofni í vinnuhæð, spanhelluborði og viftu sem fellur undir efri skáp.
Stálvaskur og Grohe blöndunartæki, innbyggður ísskápur og frystir og innbyggð Whirlpool uppþvottavél. Sérsmíðuð eldhúsinnrétting, Samsung ísskápur getur mögulega fylgt.
Svefnherbergi, fjórfaldur fataskápur.
Baðherbergi með vaskinnréttingu, speglaskápur, vegghengt salerni og sturta, sturtuhorn er flísalagt, gluggi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Geymsla, 3,1 m² að stærð, samkvæmt teikningu, er staðsett inn af hjónaherbergi, rennihurð, nýtt í dag sem barnaherbergi. 
Gólfefni: Pergo harðparket frá Álfaborg er á gólfi í alrými og svefnherbergi. Flísar eru á baðherbergi og anddyri. 

T.ark arkitektar eru aðalhönnuðir hússins. Edenmörk 3 er sex íbúða staðsteypt tveggja hæða hús. Allir útveggir ásamt veggjum á milli íbúða eru staðsteyptir.  Húsið er klætt að utan með málm- og timburklæðningu. 
Sérinngangur er í íbúðina. Sameiginleg lóð er frágengin, sorptunnuskýli, opið hjólaskýli er á lóð. Miðlægt torg er á milli húsanna á svæðinu þar sem verða fjögur lítil gróðurhús sem íbúar svæðisins geta leigt af sveitarfélaginu til eigin nota. 
Bílastæði eru í sameign. Húsfélag er starfrækt í eigninni. 

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 251-4040.

Stærð: Íbúð 63,1 m².
Brunabótamat: 37.150.000 kr.
Fasteignamat: 42.350.000 kr.  
Byggingarár: 2021
Byggingarefni: Steypa
 


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is


Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is |  Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.