Elín Káradóttir
Eigandi og löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 859-5885
elin@byrfasteign.is
Bláargerði 10a , 700 Egilsstaðir
53.900.000 Kr.
Raðhús/ Raðhús á einni hæð
4 herb.
101 m2
53.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
3
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2020
Brunabótamat
53.750.000
Fasteignamat
41.500.000

BYR fasteignasala kynnir í einkasölu BLÁARGERÐI 10A, 700 Egilsstaðir. Vel skipulagt raðhús á einni hæð með þremur svefnherbergjum. Húsið er staðsett í rólegri götu og opið svæði er fyrir aftan húsið. Ýtið hér fyrir staðsetningu. 
Skipulag eignar: Anddyri, gangur, þrjú svefnherbergi, alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu, þvottahús, og baðherbergi, háaloft. 

Nánari lýsing: 
Anddyri með flísum á gólfi, fataskápur. 
Frá anddyri er gangur sem leiðir inn í önnur rými. 
Alými með stofu, borðstofu og eldhúsi.
Eldhúsið er inn af borðstofu og stofu. Gott skápapláss í innréttingu, helluborð, Electrolux ofn og vifta, innbyggður ísskápur, innbyggð Eletrolux uppþvottavél. Pláss fyrir tvo háa stóla til að sitja við eyju.  
Stofa og borðstofa eru saman í rými, með útgengt út á pall.
Svefnherbergin eru þrjú.
Hjónaherbergi
með fjórföldum fataskáp. 
Tvö barnaherbergi, bæði með fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Vaskinnrétting, vegghengt salerni, sturta með einu gleri og handklæðaofn. 
Þvottahús og geymsla saman í rými. Inntök fyrir rafmagn og hita. 
 
Húsið er timburhús á einni hæð. Fjórar íbúðir eru í raðhúsinu. Í bakgarði er timburverönd með skjólveggjum að hluta. Sameiginlegur garður sem er grasi gróin.
Fyrir framan hús er möl í bílaplani, steypt sorptunnuskýli fyrir þrjár tunnur og hellulögð verönd við anddyri.

Gólfefni: Flæðandi parket er á alrými, svefnherbergjum og gangi. Flísar eru á anddyri, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu.
Gólfhiti er í allri eigninni, Danfoss hitastýringar eru í öllum rýmum.  
Upptekið loft í alrými. Lúga upp á háaloft er á gangi, háaloft er yfir baðherbergi, þvottahúsi og herbergjum við gang. Háaloftið er einangrað og notað sem geymsla.

Skráning eignarinnar hjá HMS:
Stærð: Raðhús 101,3 m².
Brunabótamat: 53.750.000kr.
Fasteignamat: 41.500.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat ársins 2024 er kr. 51.650.000.-  
Byggingarár: 2020
Byggingarefni: Timbur


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala - silla@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is |  Austurmörk 7, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.