BYR fasteignasala kynnir í einkasölu FAXATRÖÐ 10A, Egilsstöðum. Þriggja herbergja íbúð í parhúsi á einni hæð við lítin botnlanga í grónu hverfi á Egilsstöðum. Góð staðsetning, leikskóli og grunnskóli, sundlaug og öll almenn þjónusta í göngufæri, stutt í óspillta náttúru og gönguleiðir. Stærstur hluti lóðar snýr til suðurs. Ýtið hér fyrir staðsetningu. Tilvalin fyrsta eign fyrir þá sem vilja komast í sérbýli með mikla möguleika. Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvotthús/geymsla. Útigeymsla.
Nánari lýsing:Anddyri, þaðan er innangengt í þvottahús. Rafmagnstafla er í anddyri.
Alrými með
stofu, borðstofu og eldhúsi er inn af anddyri,
Eldhús með rúmgóðri Brúnás innréttingu, helluborð, ofn í vinnuhæð, stálvaskur, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.
Tvö svefnherbergi.Hjónaherbergi með tvöföldum opnum fataskáp.
Svefnherbergi án fataskáps.
Baðherbergi, baðkar, vegghengt salerni, innbyggð vaskinnrétting og skápar.
Þvottahús/geymsla, þaðan er lúga upp á loft. Ekki er hurð á þvottahúsi.
Gólfefni: Harðparket er á alrými og svefnherbergjum. Flísar á baðherbergi og þvottahúsi. Málað gólf er í þvottahúsi.
Gólfhiti er í öllu húsinu, hitastýringar eru í þvottahúsi.
Húsið er parhús á einni hæð, klætt að utan með standandi timburklæðningu. Gluggar eru timbur gluggar. Inngangur hússins er til suðurs, þar er verönd með timburflísum og skjólveggjum. Lóð er gróin. Möl er í bílaplani.
Geymsluskúr stendur framan við hús hjá bílastæði u.þ.b. 6 m² að stærð (stærð hans er ekki inn í m² tölu hússins).
Lóðin er sameiginleg 750,0 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Skráning eignarinnar hjá Þjóðskrá Íslands (HMS):Stærð: Parhús 57.2 m².
Brunabótamat: 27.350.000 kr.
Fasteignamat: 25.450.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat ársins 2024 er kr. 31.500.000.-
Byggingarár: 1986.
Byggingarefni: Timbur
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala - silla@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala