Elín Káradóttir
Eigandi og löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 859-5885
elin@byrfasteign.is
Klettamói 7 íbúð 102 , 815 Þorlákshöfn
42.800.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sérinngangi
3 herb.
67 m2
42.800.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sér
Byggingaár
2023
Brunabótamat
0
Fasteignamat
2.100.000

BYR fasteignasala kynnir KLETTAMÓI 7  ÍBÚÐ 102, Ölfusi. Ný þriggja herbergja íbúð á  neðri hæð, góð staðsetning miðsvæðis í Þorlákshöfn Ölfusi, stutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði. Ýtið hér fyrir staðsetningu. 
Hafðu samband og bókaðu einkasýningu, sýnum samdægurs: ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR HJÁ BYR FASTEIGNASÖLU, Elín og Sigurbjörg s. 483-5800 / 859-5885.


ÍBÚÐIN VERÐUR TILBÚIN TIL AFHENDINGAR 15 ágúst 2023. Sérinngangur er í íbúðina.
ÍBÚÐ 102 NEÐRI HÆÐ. Íbúðin er  67,7 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu og eldhúsi, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymsla.
EIGNINNI VERÐUR SKILAÐ SAMKVÆMT SKILALÝSINGU,  fullbúin án megin gólfefna. 
Ýtið hér fyrir heimasíðu Móabyggðar. 
Ljósmyndir eru úr sambærilegri eign í sambærulegu húsi frá sama verktak og eru því eingöngu til viðmiðunar. 


Nánar um íbúð: 
Anddyri með tvöföldum fataskáp.
Alrými með stofu og eldhúsi. Útgengt er út á sérnotareit frá stofu.
Eldhús með Svansvottaðri HTH innréttingu, Melamine filma er á eldhúsinnréttingu á neðri skápum og háum skápum.Skúffur með mjúklokun. 
Heimilistæki eru vönduð af AEG gerð, spanhelluborð, bakaraofn með sjálfhreinsikerfi. Stálvaskur með einnar handar blöndunartæki. Gert er ráð fyrir að hægt sé að vera með innbyggða uppþvottavél og ísskáp + frysti, framhliðar fylgja.
Svefnherbergin eru tvö. Hjónaherbergi með HTH fataskáp yfir heilan vegg. Barnaherbergi með fataskáp. Fataskápar ná upp í loft með aðfellu. Innvols innréttinga og fataskápa er hvítt, grindur í fataskápum eru krómaðar
Baðherbergi, flísalagt gólf, hluti veggja, sturtuhorn er flísalagt með 30x60 flísum. Vegghengt salerni, baðinnrétting með handlaug í borði og einnar handar blöndunartæki, sturta og handklæðaofn. Innrétting fyrir þvottavélar er á baðherbergi.
Sérgeymsla  3,9 m² er í sameiginlegu geymslurými á neðri hæð hússins. 
Íbúðinni fylgir sérnotaréttur af einu bílastæði á sameiginlegri bílastæðalóð. Lagnaleið fyrir rafhleðslustöðvar liggja úr hverju húsi að bílastæðum þess húss. 

Veggir og loft íbúðarinnar verða máluð í hvítum lit. Loftræsting, öll rými íbúðar eru náttúrulega loftræst í gegnum glugga ásamt því að loft er tekið inn um tvo ferskloftsventla. Vélrænt útsog er á baðherbergi, eldhúsi og þvottahúsi.
Reykskynjarar og slökkvitæki fylgja öllum íbúðum.

Nánar um húsið. Klettamói 7 er sex íbúða tvílyft hús.  Allir útveggir ásamt berandi innveggjum og milligólf eru staðsteypt. Gólfplötur milli íbúða eru staðsteyptar einnig eru stigar, svalir og svalagangar staðsteypt eða steypueiningar með endanlegu yfirborði.
Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með smábáru og sléttri málmklæðningu að hluta. Þak er viðsnúið með pvc dúk. Á hvorri hæð eru þrjár íbúðir og þrjár geymslur ásamt sameiginlegu tæknirými. Tveir stigar liggja upp á efri hæð.

Móabyggð fyrsti áfangi, afmarkast af Hnjúkamóa í suðri, Klettamóa í norðri og Rásamóa í austri. Göturnar Hnjúkamói og Klettamói eru tengdar saman með vistgötum. Malbikuð bílastæði eru við Hnjúkamóa, Klettamóa, Rásamóa og í vistgötum. Auk þess eru gestastæði á svæðinu. Miðsvæðis milli bygginga er dvalarsvæði ætlað til útivistar og leiksvæði.

Tölvuteikningar eru eingöngu til viðmiðunar, en endurspegla ekki endilega endanlegt útlit eignarinnar. 
Samþykktir aðaluppdrættir hönnuða eru gildandi ef upp kemur misræmi á milli þeirra og annarra gagna. Allt auglýsinga og kynningarefni t.d. þrívíddar myndir/teikningar og litir í þeim eru eingöngu til hliðsjónar ekki er um endanlegt útlit að ræða.  Athygli er vakin á því að á meðan byggingarframkvæmdum stendur áskilur seljandi sér allan rétt til að gera tækni-, efnis- og útlitsbreytingar. Allt myndefni birt með fyrirvara – byggingarnefndarteikningar gilda.


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala - silla@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is |  Austurmörk 7, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.