Elín Káradóttir
Eigandi og löggiltur fasteignasali
Símanúmer: 859-5885
elin@byrfasteign.is
Berjarimi 2 íbúð 301 , 112 Reykjavík (Grafarvogur)
59.900.000 Kr.
Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
3 herb.
113 m2
59.900.000
Stofur
1
Svefnherbergi
2
Baðherbergi
1
Inngangur
Sameig.
Byggingaár
1992
Brunabótamat
41.050.000
Fasteignamat
53.550.000

Byr fasteignasala kynnir BERJARIMI 2 ÍBÚÐ 301, 112 Reykjavík í einkasölu. Þriggja herbergja íbúð á þriðju/efstu hæð í fjölbýlishúsi í Rimahverfinu. 
Tvö svefnherbergi, þvottahús innan íbúðar, sér bílastæði í lokaðri bílageymslu. 
Vel staðsett eign á eftirsóttum stað í Rimahverfinu, stutt í alla helstu þjónustu, leikskóli, grunnskóli og framhaldsskóli í göngufæri. Ýtið hér fyrir staðsetningu. 

Skipulag eignar: Anddyri, alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og þvottahús. Í sameign: sér geymsla, anddyri, sorpgeymsla, hjóla- og vagnageymsla og sér bílastæði í bílageymslu. 

Skráning eignarinnar hjá Þjóðskrá Íslands:
Stærð: Íbúð 85,8m² og stæði í bílgeymslu 28,0 m², samtals 113,8 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Fasteignamat: 53.550.000.-
Brunabótamat: 41.050.000.-
Byggingarár: 1992
Byggingarefni: Steypa

Nánari lýsing: 
Anddyri með flísum á gólfi, tvöfaldur fataskápur. 
Stofa með harðparketi, útgengt er út á svalir frá stofu.
Eldhús, með harðparketi á gólfi, borðkrókur er milli eldhúss og stofu. Spanhelluborð, vifta og ofn, stálvaskur. Gert er ráð fyrir uppþvottavél í innréttingu. 
Svefnherbergin eru tvö bæði með harðparketi á gólfi. Hjónaherbergi með fjórföldum fataskáp, tvöfaldur fataskápur er í barnaherbergi. 
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Vegghengt salerni, vask innrétting, sturtuklefi, handklæðaofn og bidet. 
Þvottahús er innan íbúðar, málað gólf.

Í sameign er sérgeymsla með hillum, málað gólf.
Sér bílastæði fylgir íbúðinni í bílakjallara, innangengt er úr húsi í bílakjallara. 
Anddyri með póstkössum og dyrasíma frá 2021, flísar á gólfi. Stigahús með teppi. 
Hjóla- og vagnageymsla er í sameign, þaðan er útgengt út í bakgarð. Sorpgeymsla er í lokuðu rými við anddyri. 
Hleðslustaur í eign húsfélagsins Berjarima 2 er við bílastæði framan við húsið. 

Húsið Berjarími 2-8 „Ormurinn langi" er teiknaður af EInari V. Tryggvasyni arkitekt árið 1992.
Húsið er þriggja hæða fjölbýlishús með 36 íbúðum og bílahúsi í kjallara. Berjarimi 2 skiptist í níu íbúðir. 


ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is 
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala - silla@byrfasteignasala.is

Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.

Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.        
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
 
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi -  0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga  / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

www.byrfasteign.is |  Austurmörk 7, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala

Senda fyrirspurn um eignina

Skilaboð hafa verið send.

Sjá söluyfirlit

Skilaboð hafa verið send.