BYR fasteignasala kynnir í einkasölu LANGAHRAUN 20, 810 Hveragerði. Nýlegt fjögurra herbergja raðhús með innbyggðum bílskúr, heitur pottur.
Húsið stendur í nýju hverfi í Kambalandi í Hveragerði, stutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði við Hamarinn. Ýtið hér fyrir staðsetningu. Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, sjónvarpshol, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, gangur og bílskúr með geymslu, þvottahús.
Skráning eignarinnar hjá Þjóðskrá Íslands:Stærð: Íbúð 93,0m², bílskúr 46,9 m² samtals 139,9 m²
Brunabótamat: 71.850.000 kr.
Fasteignamat: 73.550.000 kr.
Byggingarár: 2021
Byggingarefni: Timbur
Nánari lýsing:
Anddyri með fataskáp, þaðan er innangengt í bílskúr.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er frá alrými á timburverönd til suðurs og vesturs.
Eldhús með eyju, spanhelluborð er í eyju með innbyggðri viftu, ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð, innbyggður ísskápur og innbyggð uppþvottavél.
Sjónvarpshol er við alrými.
Þrjú svefnherbergi, tvö þeirra eru með fataskáp.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Handlaug á borði baðinnréttingar. Vegghengt salerni, handklæðaofn. Innbyggð Damixa tæki eru við handlaug, innbyggð Hansa tæki er í sturtu. Gert er ráð fyrir handklæðaofni á baðherbergi (ekki uppsettur).
Þvottahús er innaf bílskúr, innrétting með plássi fyrir tvær vélar í vinnuhæð. Stálvaskur í borði. Útgengt er út í bakgarð frá þvottahúsi.
Bílskúr með geymslu, rafdrifinn hurðaopnari, inntök eru í bílskúr.
Innbyggð lýsing er í alrými. Rofar og tenglar eru hvítir að lit.
Vélræn loftun er frá baðherbergi, eldhúsi, þvottahúsi og bílskúr.
Gólfefni; Harðparket frá Birgisson er á alrými, sjónvarpsholi, gangi og svefnherbergjum. Flísar á anddyri og baðherbergi. Epoxy á þvottahúsi og bílskúr.
Gólfhiti er í allri eigninni líka bílskúr, gólfhitastýringar eru á veggjum íbúðar. Gólfhiti er ísteyptur í botnplötu ásamt neysluvatnslögnum.
Loftræstikerfi er á húsinu í alrými og svefnherbergjum. Innihurðar frá Birgisson. Lúga með felli stiga er uppá loft úr herbergi aftan við alrými.
Húsið er timburhús í raðhúsalengju þriggja húsa. Útveggir eru klæddir að utan með liggjandi báruklæðningu í bland við svarta viðarklæðningu. Klæðning að utanverðu er hvítt Aluzink frá Stjörnublikk. Timburklæðning er í innskotum hússins máluð með Ibenholt svörtum Kjörvara 14. Þak er timburþak, ysta klæðning er svart aluzink. Þakkantur er svartur að lit og þakhalli er 14°. Álþakrennur eru á húsinu sem koma frá Hagblikk.
Gluggar og hurðir eru Rehau Nordic PVC, hvítir að lit frá Gluggavinum. Í rafmagnstöflu er gert ráð fyrir möguleika á hleðslustöðvum rafbíla.
Steypt bílaplan með hitalögn er framan við húsið, pláss fyrir fjórar bifreiðar.
Timburverönd u.þ.b. 60 m² er framan við húsið til suðurs og vesturs.
Heitur pottur (hitaveitu) 6 manna er á timburverönd, hluti lóðar er grófjafnaður.
Sorptunnuskýli fyrir þrjár tunnur er framan við húsið.
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Sigurbjörg Halla Sigurjónsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala - silla@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði | Byr fasteignasala