BYR fasteignasala kynnir í sölu ÓÐINSSTÍGUR 6, 805 Selfoss. GLÆNÝTT SUMARHÚS á EIGNARLÓÐ við Óðinsstíg í landi Ásgarðs Grímsnesi. Ýtið hér fyrir staðsetningu. Skipulag eignar: Anddyri, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, gangur og baðherbergi.
Nánari lýsing: Anddyri með tvöföldum fataskáp.
Gangur liggur innan við anddyri að öðrum rýmum eignarinnar. Lúga er upp á loft á gangi.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, parket á gólfi, upptekið loft, innbyggð lýsing, útgengt er út á timburverönd til suð-vesturs frá alrými.
Eldhús sérsmíðuð innrétting, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og ísskápur/frystir fylgir eigninni.
Svefnherbergin eru þrjú (eitt þeirra er skráð skrifstofa á teikningu). Tvö stærri herbergin eru með fataskáp.
Baðherbergi, sturta, vegghengt salerni, vaskinnrétting, speglaskápur, Sturtuveggir eru flísalagðir, gluggi, útgengt er úr baðherbergi út á timburverönd.
Gólfefni: vinyl parket á alrými, gangi, svefnherbergjum. Flísar á anddyri og baðherbergi.
Gólfhiti er í allri eigninni. Húsið afhendist með góflhitakerfi sem blæs heitu lofti, lofhitakerfi er lagt í gólfplötu. Gólfhitakerfi er tengt og fullfrágengið með stýringum.
Innréttingar eru sérsmíðaðar í Finnlandi frá Belkod ehf. Innbyggð lýsing er í öllum rýmum. Möguleiki er á að kaupa hluta af innbúi með eigninni. Húsið er timburhús byggt úr forsniðnum timbureiningum á einni hæð á steyptum sökkli og steyptri plötu. Veggir hússins eru klæddir að utan með liggjandi timburklæðningu. Bárujárn á þaki. Gluggar eru ál/tré gluggar með þreföldu gleri, gráir að lit.
Lóð er frágenginn, möl í bílastæði, pláss fyrir 2 bifreiðar. Timburverönd u.þ.b. 60 m² er aftan við húsið til suðurs og vesturs.
Lóðin er eignarlóð skráð 9001,0 m². Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS. Stærð: Sumarbústaður 106,7 m². Byggingarár: 2023. Byggingarefni: Timbur
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala