BYR fasteignasala kynnir REYKJAMÖRK 12, 810 Hveragerði. Einbýlishús 5-6 herbergja með tvöföldum bílskúr. LAUST VIÐ KAUPSAMNING. Húsið er staðsett miðsvæðis í Hveragerði, stutt í alla almenna þjónustu, allt í göngufæri. Verðlaunagarður árið 2018. Smellið hér fyrir staðsetningu. Húsið er steypt byggt árið 1965 ásamt bílskúr byggður árið 1983. Húsið er 135,9 m² og bílskúr 63,0 m², samtals 198.9 m² samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Skipulag eignar: Anddyri/skáli, stofa og borðstofa, eldhús, þrjú til fjögur svefnherbergi, vinnuherbergi baðherbergi, gestasalerni, gangur, þvottahús og búr, bílskúr, og gróðurhús.
Nánari lýsing: Anddyri/skáli, flísar og parket á gólfi, fatahengi, gestasalerni er við anddyri/skála.
Eldhús, korkur á gólfi, Axis innrétting, Fagor helluborð, Gorenje ofn , Simens uppþvottavél og Fagor ísskápur fylgja.
Stofa og borðstofa, parket á gólfi, gluggar á þrjá vegu.
Vinnuherbergi er við hlið eldhúss, parket á gólfi.
Gestasalerni er flísalagt í hólf og gólf, salerni og handlaug, gluggi.
Svefnherbergisgangur, parket á gólfi.
Hjónaherbergi er með fataskáp með rennihurð, parket á gólfi
Barnaherbergin eru tvö voru uppunalega þrjú, annað þeirra er með fataskáp, möguleiki á að breyta aftur til baka.
Baðherbergi er flísalagt gólf og á veggjum að hluta, sturtuklefi, vegghengt salerni og handlaug, skápainnrétting, gluggi.
Þvottahús, málað gólf, innrétting með stálvask, pláss fyrir tvær vélar, gluggi. Útgengt er úr þvottahúsi út í bakgarð við heitan pott.
Búr (geymsla) er innaf þvottahúsi, korkur á gólfi, vegghengdar hillur og gluggi.
Bílskúr, tvöfaldur bílskúr með tveimur háum innkeyrsludyrum. Bilskúr hefur verið notaður sem verkstæði. Þriggja fasa rafmagn er í bílskúr. Gluggar eru á þrjá vegu , gönguhurð er á hlið bílskúrs.
Húsið og bílskúrinn eru steypt, bárujárn á þökum, timburgluggum. Þak hússins var yfirfarið og skipt um járn fyrir u.þ.b. 6 árum síðan.
Rúmgott malbikað bílastæði er við húsið, pláss fyrir 3-4 ökutæki. Hellulagt er frá bílastæði að húsi. Verönd er aftan við húsið með
heitum potti, þar við er lítið gróðurhús.
Grillskýli er við inngang hússins og hellulögð verönd með skjólgirðingu. Listaverk í garði fylgja ekki og verða fjarlægð fyrir afhendingu.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 221-0801Stærð: Íbúð 135,9 m². Bílskúr 63,0 m²
Brunabótamat: 84.150.000 kr.
Fasteignamat: 82.000.000 kr.
Byggingarár: 1965 Íbúðarhús, 1983 Bílskúr.
Byggingarefni: Steypa
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR Á SKRIFSTOFU s. 483 5800 - byr@byrfasteignasala.is
Elín Káradóttir, löggiltur fasteignasali og eigandi – elin@byrfasteignasala.is
Hrönn Bjargar Harðardóttir, löggiltur fasteignasali / stílisti - hronn@byrfasteignasala.is
Opið alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Byr fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1.6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
www.byrfasteign.is | Austurmörk 7, 810 Hveragerði - Miðvangur 2-4, 700 Egilsstaðir | Byr fasteignasala