*BYR-FASTEIGNASALA* - DYNSKÓGAR - HVERAGERÐI// Mikið endurnýjað fjögurra herbergja einbýlishús með um 46fm tæplega fokheldum bílskúr. Eignin skiptist á eftirfarandi hátt: anddyrir, þvottahús, eldhús, geymslu/búr, stofu, baðherbergi og þrjú svefnherbergi. Öll gólfefni eru ný, plastparket og dúkur. Eldhúsinnrétting og tæki ný og eins allt inn á baðherbergi. Innrétting er í geymslu og þvottahúsi. Allt gler var endurnýja svo og gluggalistar. Rafmagnslagnir, rafmagstafla, hitalagnir, ofnar og neyslulagnir eru nýjar. Um er er að ræða snyrtilegt timburhús með lagnakjallara (lofthæð rúmur meter). Ekki er búið að steypa gólf í bílskúrnum og þakið þarfnast viðgerða.