Kaupanda er kunnugt um að seljandi eignaðist hina seldu eign í skuldaskilum og að seljandi getur því ekki uppfyllt upplýsingaskyldu sína. Seljandi bendir því kaupanda á að gæta sérstakrar árvekni við skoðun á eigninni og að kaupandi leiti sér aðstoðar sérfræðinga til að meta ástand eignarinnar. Seljandi og fasteignasali hafa veitt kaupanda allan nauðsynlegan aðgang til að meta og skoða hina seldu eign. Eignin selst í því ástandi sem hún var í við nákvæma skoðun kaupanda og hann sættir sig við að öllu leyti.
Athugið að kaupendur greiða stimpil-, þinglýsingar- og lántökugjald vegna kaupsamnings og nýrra lána, auk þjónustu- og umsýslugjalds til fasteignasölunnar.