*BYR-FASTEIGNASALA* - HEIÐMÖRKI - HVERAGERÐI// Flott 6 herbergja einbýlishús í byggingu með 34 m2 bílskúr. Eignin er í dag með byggingastig 2, en er þó að nálgast fokheldi.
Upplýsingar samkvæmt teikningum:Svefnherbergin eru 4 // Borðstofa, stofa og eldhús eru í sama rými og þaðan er útgengt út í garð // Frá stofu er gengið í 13fm sólstofu // Rúmgott miðrými eða gangur er við herbergin og nýtist það pláss jafnvel sem sjónvarpskrókur // Eitt baðherbergi er í húsinu með baðkari og sturtu // Úr bílskúr er innangengt í 6,5fm geymslu, þaðan er innangengt í lítið þvottahús þar sem gengið er inn í húsið.
Athugið að kaupendur greiða stimpil-, þinglýsingar- og lántökugjald vegna kaupsamnings og nýrra lána, auk þjónustu- og umsýslugjalds til fasteignasölunnar.