*BYR FASTEIGNASALA* Langamýri - Selfoss. 4-5 herbergja endaraðhús með um 28fm innbyggðum bílskúr.// Skipulag eignar; 3 svefnherbergi, stofa, eldhús, hol, bað, forstofa og þvottahús. Að auki er búið að taka hluta af bílskúrnum og breyta í herbergi.// Eikarparket er á gólfum í herbergjum, stofu og holi en flísar eru á eldhúsi, forstofu og baði.// Kirsuberjaspónlagðar innréttingar eru á baði og í eldhúsi, einnig eru fataskápar í herbergjunum og holi og innihurðir kirsuberjaspónlagðar.// Innangengt er í bílskúrinn en þar vantar aðeins upp á lokafrágang.// Verönd er framan við húsið við inngang. Húsið er klætt að utan með steni klæðningu.
Ekkert húsfélag er starfrækt við eignina.
Athugið að kaupendur greiða stimpil-, þinglýsingar- og lántökugjald vegna kaupsamnings og nýrra lána, auk þjónustu- og umsýslugjalds til fasteignasölunnar.