*Byr fasteignasala auglýsir* Kambahraun - Hveragerði // Glæsilegt 205fm einbýlishús með 45fm tvöföldum bílskúr og einstaka tengingu við náttúruna en húsið er staðsett innst í efsta botnlanganum í Kambahrauninu. Eignin skiptist á eftirfarandi hátt: Anddyri, fataskápur// Hol, sérlega fallegur opinn arinn er staðsettur í miðju holinu og eldstæðið því meðal annars sjáanlegt frá stofu og eldhúsi// Stofa, upptekið loft með halogenlýsingu, útgengt á hellulagða suðurverönd//Skrifstofa, vel útbúin með sérhönnuðum innréttingum// Eldhús, sérsmíðuð eldhúsinnrétting úr mahogny // Geymsla, gott hillupláss// Þvottahúsið er með útgengi og er í dag notað sem herbergi// Gestasnyrting, flísar í hólf og gólf, ljós baðinnrétting// Þegar komið er inn ganginn er opið rými sem auðvelt er að breyta í tvö herbergi, loft upptekin// Tvö stór svefnherbergi með stórum fataskápum eru svo til viðbótar bæði með loftin upptekin// Baðherbergi, flísar í hólf og gólf, sturtuklefi og fallegt baðkar, ljós viðarinnrétting// Hönnun hússins er einstaklega skemmtileg og val á innréttingum vandað. Allar innihurðir og innrétting á skrifstofu eru sérpantaðar frá Spáni. Innbyggt ryksugukerfi er í húsinu. Bílskúrinn er tvöfaldur með tveimur innkeyrsluhurðum báðar með bílskúrshurðaopnurum. Garðurinn er verðlaunagarður og tengingin við náttúrulegt umhverfið er einstakt.