*Byr fasteignasala auglýsir* Borgarheiði - Hveragerði - Einkasala // Fjögurra herbergja einbýlishús með stórri verönd og heitum potti// Eignin skiptist sem hér segir: Anddyri, fataskápur// Baðherbergi-þvottahús, nýuppgert með upphengdu wc og hvítri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir tækum eins er gert ráð fyrir sturtu// Herbergin eru þrjú, tvö stór og eitt lítið, fataskápur er í einu herbergi og á ganginum er fataskápur fyrir hin tvö herbergin// Stofa, útgengt er frá stofu út á stóra verönd og þar er pottur (rafmagns), auðvelt er að útbúa fjórða herbergið í enda stofunnar// Eldhús, allt nýuppgert, falleg hvít innrétting, gaseldavél// Þegar komið er að húsinu er gengið inn í óupphitað rými þar sem inngangurinn í húsið er og eins er gengið þar inn í geymslu. Nýjir gluggar eru í öllu húsinu og eins er nýtt á gólfum í eldhúsi og baðh/þvottahúsi (parketflísar). Bílskýli er fyrir framan húsið. Garðurinn er vel gróinn og fallegur. Eignin hefur fengið gott viðhald og er staðsett rétt við leikskóla.