Byr fasteignasala auglýsir til sölu um 160ha jörð í ca 17km fjarlægð frá Selfossi. Jörðin er sléttlendi og algróin, Flóaveita liggur í gegnum hana. Auðvelt á að vera að skipta jörðinni í smærri einingar. Á jörðinni er stórt íbúðarhús með 8 herbergjum, þar af tvær stofur. Húsið er á tveimur hæðum og víða komið að viðhaldi. Fyrir um 25 árum var byggt við og húsið stækkað og þar er sérinngangur, baðherbergi og stór stofa. Eignin skiptist í tvær stofur á neðri hæð, sex herbergi (eitt á neðri hæð), þrjú baðherbergi, eldhús og anddyri. Stór gróinn garður er við íbúðarhúsið. Útihús eru fjós í sæmilegu standi sem auðvelt ætti að vera að breyta í t.d. hesthús. Stór hlaða er áföst fjósinu. Einnig er á jörðinni vélaskemma í lélegu ástandi. Hér er um að ræða góða jörð, grasgefna og góða til ræktunar.