Valsheiði, Hveragerði

  • Tegund:
    Einbýli
  • Stærð:
    243
  • Fasteignamat:
    32.750.000
  • Brunabótamat:
    62.250.000
  • Áhvílandi:
    0
  • Herbergi:
    5
  • Svefnherbergi:
    4
  • Baðherbergi:
    2
  • Stofur:
    1
  • Þvottahús:
  • Bílskúr:
    1

Verð: 54.800.000 kr

Valsheiði, Hveragerði



*BYR-FASTEIGNASALA* VALSHEIÐI - HVERAGERÐI// Höfum í einkasölu 5 herbergja einbýlishús með um 65m2 bílskúr//Hér er um að ræða eitt af glæsilegustu húsum Hveragerðis eignin er öll innréttuð af mikilli smekkvísi og vandvirkni.

Eignin skiptist í stórt anddyri, fjögur stór herbergi, rúmgott hol, 2 baðherbergi, þvottahús, stofu/eldhús í sama rými og stóran bílskúr sem innangengt er í. Stórir fataskápar eru í öllum herbergjum og anddyri, vandað eikarparket á öllum gólfum nema þar sem eru flísar sem eru í anddyri, baðherbergjum og þvottahúsi. Gólfhiti er í öllu húsinu.

Baðherbergin eru mjög flott og stór, bæði flísalögð í hólf og gólf og með upphengdu wc, sturtu og eikarinnréttingu. Annað baðherbergið er innaf hjónaherbergi og er útgengt frá því (þar sem gert er ráð fyrir palli og heitum potti) Í hinu baðherberginu sem staðsett er miðsvæðis í húsinu er hornbaðkar.

Eldhúsið er eins og áður sagði í sama rými og stofan. Eldhúsinnréttingin sem er hvít með eikarborðplötu er með góðu skápaplássi og fallegum efri skápum með reyklituðu gleri. Útgengt er úr eldhúsi. Stofan er mjög björt og fallegt með gólfsíðum gluggum og frábæru útsýni. Lofthæðin í stofu, eldhúsi, baðherbergi, þvottahúsi og holi er hærri en venjan er, en hún er um 3,5 metrar. Bílskúrinn er ekki fullkláraður en komin er stór bílskúrshurð með bílskúrshurðaopnara. Lítil geymsla er í hluta bílskúrsins.

Að utan; forsteyptu einingarnar eru ómálaðar en með mjög fallegri áferð og þarf því ekkert frekar að mála. Lóðin er ófrágengin. Einstök eign sem er staðsett í rólegum botnlanga og við grænt svæði. Húsið stendur hátt og er útsýnið þaðan mjög fallegt.


Innlit Útlit kom í heimskókn 22 apríl síðastliðinn, fjallaði um húsið og sýndi myndir. Hægt er að sjá þáttinn í heild sinni á eftirfarandi slóð. Umfjöllunin um húsið hefst þegar um 30 mín. og 20 sek. eru liðnar af þættinum.





Athugið að kaupendur greiða stimpil-, þinglýsingar- og lántökugjald vegna kaupsamnings og nýrra lána, auk þjónustu- og umsýslugjalds til fasteignasölunnar.







Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd Mynd